Gerša;D
Klukk var žaš.Valgeršur Kristjana Žorsteinsdóttir
Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina...- Unglingavinnunni
- Stíganda
- Bautanum
- Sportver
Fjórar myndir sem ég held uppá...
- Mamma Mia
-Sex & the city
- Good luck Chuck
- Bend it like Beckham
Fjórir staðir sem ég hef búið á...
- Vesturgata 10
- Aðalgata 18
- Melgata 10
- Snægil 15
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar...
- Greys Anatomy
-Biggest Loser
- Dagvaktin
- One tree hill
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum...
- Afríka
- Spánn
- Þýskaland
- Danmörk
Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan bloggsíður...
- Hotmail.com
- Barnaland.is
- Barnanet.is
Fernt matarkyns sem ég held uppá...
- nr. 1.2.3 Fiskur í raspi
-Kjúklingur
Fjórar bækur eða blöð sem ég les oft...
- Séð og heyrt
- Mogginn
- 24 stundir
- Fréttablaðið
ég les ekki bækur:)
Fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna...
- DK hjá diddu
- spáni
- ólafsfirði
- uppí sófa að kúra hjá Steina, fer í það eftir bloggið:)
Fjórir bloggarar sem ég klukka...
- Kamilla
- Síssa
- Inga
- Didda
Jæja, ég var víst klukkuð af henni Höllu sætu, þannig að ég ákvað að gera þetta:)
Annars er allt gott að frétta héðan, erum enn í húsnaðarleit, en þetta er held ég bara á réttri leið, erum reyndar komin með svar úr einni og við fáum íbúðina efað við vilum, okkur leist alveg ágætlega á hana reyndar en erum samt ekki alveg 100%, svona sumt sem að okkur líkar ekki alveg hehe:) En þetta kemur allt saman í ljós, ætlum ekkert að stressa okkur neitt á þessu, annars lendum við bara í því að þurfa að borga 2 leigur, efað við fáum íbúð of snemma:)
Veðrið er ekkert búið að vera uppá sitt besta núna undafarið, reyndar fínt að fá smá snjó, en mér finnst samt of mikill snjór eitthvað, fínt að vita að það sé stutt í að maður getur skellt sér á bretti, sem að ég er reyndar ekkert mjög dugleg við

Helgin er búin að vera mjög fljót að líða, í dag lágum við nú aðeins lengur uppí rúmmi, en fórum nú frammúr fyrir hádegi hihi, horfðum á yndislegan sigur hjá Liverpool á móti Chelsea, en dagurinn fór ansi mikið í það að bíða eftir að moksturskallinn færi á stað til grenivíkur, svo að við gætum lagt í hann. Skruppum til pabba í smá heimsókn og fórum svo til Önnu Birnu og Írisar Völu ákvaðum svo að fara til Grenivíkur í afmæli hjá Kötlu og Pétri, fengum alveg dýrindis mat,, læri og meðlæti:) Takk fyrir mig:) Stoppuðum reyndar stutt, því að sumir voru frekar stressaðir útaf veðri hehe, sem að ég skil nú alveg reyndar;)
En jæja er að spá í því að enda þetta blogg, ætla að fara kúra í sófanum smá áður en maður þarf að drífa sig í háttinn:) Verið nú dugleg að kvitta fyrir komu ykkar..
...Valgeršur Kristjana Žorsteinsdóttir
Úff, hvenar ætla ég að vera dugleg í þessum bloggheimi, hmm maður spyr sig:P Ætli maður fari bara ekki að hætta þessu..
Annars er allt gott að frétta. Lítið sem ekkert að ske reyndar!
Vikan var ansi fljót að líða finnst mér, en það er ekkert verra J Ég get nú kannski sagt ykkur eitthvað hvað ég er búin að vera gera.
20 sept hefði Ingólfur Ben orðið 100 ára gamall (afi Steina). Fjölskyldan ákvað að hafa hitting , það var mjög gaman að sjá allt liðið enda hellingur sem að ég var ekki búin að hitta, fórum til Grenivíkur um 10 leytið og byrjuðum á því að fara í smá messu, svo var farið uppí skóla eftir það og fengið sér graut, eftir grautinn löbbuðum við uppá Gjáarmel og þar var skálað og fengið sér koníak, kaffi stuttu eftir það og svo kvöldmaturinn og skemmtun. Mjög fínn dagur :)
Mamma dreif mig með sér á Mamma Mía, og viti menn mig langar aftur, þetta er bara snilldar mynd og ég get endalaust hlustað á abba eftir þetta hehe :P Ég fæ mér pottþétt myndina þegar hún kemur út á DVD...
Íbúðarmálin eru nú ekki alveg þau bestu núna, en eigandinn vill hækka leiguna uppí 105þús, erum nú ekkert hæstánægð með það, en maður skilur hann nú samt alveg að vilja hækka hana, enda er þessi kreppa alveg að fara með suma :/! Samningurinn rennur út núna 1 desember, við vorum eitthvað að spá í að leigja íbúðina lengur, en erum ekki alveg viss hvað við eigum að gera núna, ætlum að skoða aðeins í kringum okkur, ég veit samt vel að flestar íbúðir eru komnar uppí 100 þús, en við sjáum til hvað við gerum!
Ég fór til augnlæknis í dag, ákvað að panta mér tíma vegna þess að gleraugun sem að ég nota þegar ég er að lesa eða horfa á sjónvarpið eru ekki alveg nógu góð:/ sé ekki nógu vel með þeim, enda er sjónin í mér búin að versna, reyndar ekkert mikið en alveg nóg, ég þarf víst að fá mér önnur gleraugu, eða allavega gler hehe, ætlum að fara í gleratorg á morgun og fara í geisla og ath hvort að við finnum nýja umgjörð, skoðaði þarna uppí kaupfangi í dag og mér leyst ekki nógu vel á þau, ætla að ath hvort að ég finni mér ekki e-h flottari á torginu J Reyndar get ég alveg notað gömlu umgjörðina, sé til hvað ég geri!
Kvöldið er bara búið að vera rólegt, Steini kom heim úr vinnu eitthvað að verða 8, horfðum smá á TV og svo ákvað ég að klippa hann haha, tókst nú alveg í seinasta skipti en reyndar ekki núna, ég hætti þegar ég var buin með smáatriðin, held að ég láti bara einhvern annan sjá um þetta, er alltof rög aftaná :P
En ætli ég hafi þetta bara ekki nóg í bili, ætla að fara og kúra hjá kallinum. Hafið það gott, og góða helgi
....Valgeršur Kristjana Žorsteinsdóttir
Best að blogga fyrir ykkur :)
Af mér og mínum er bara allt gott að frétta. Lítið sem ekkert að ske reyndar
Þessi vika er búin að vera fín, heil vinnuvika bara. Í seinustu viku ákvað ég að fara til doksa og ath sárið á fætinum á mér, mér var ekkert farið að lítast eitthvað vel á þetta, ég byrjaði að fá eitthvað sár á fótinn þegar ég var í DK, en svo fannst mér það stækka bara, þannig að eftir tæpan mánuð hehe þá ákvað ég að fara til læknis og ath þetta, hann talaði nú um að hann væri frekar hissa á mér að hafa beðið með það að fara til læknis í svona langan tíma en svona er maður nú þrjóskur hihi..en hann talaði um að þetta væri kossageit að öðru nafni strepptakokkar sem að maður fær í hálsinn! Ég var nú ekki alveg á sömu nótum og hann, og vissi ekki að að maður gæti fengið kossageit á fótinn, nice
En hann lét mig fá pensilín, sem að fer nú ekkert svo vel í mig :/, en ég er búin með skammtinn svo að ég get klappað fyrir því;)
Í seinasta mánuði fórum við í of mikið að veislum hehe, reyndar mjög fínt að fara í veislur, en það má eiginlega segja að miðað við hvað við fórum í margar veislur þá eiga flest allir afmæli í Ágúst í Steina fjölskyldu hehe
þannig að maginn á okkur er útblásinn af kökuáti, en takk fyrir mig allir:* :/. Ég ætlaði mér nú að vera svaka dugleg í þessari viku og fara að byrja í ræktinni, en ég hef ekki haft mig í það ennþá :P. Reyndar í gær þá ákváðum við „hjúin“ að drífa okkur út að hlaupa, Steini byrjaði frekar hratt en ég þurfti nú smá að hægja á honum, hann er líka vanur svona hlaupa dæmi, en ég er ekki mjög mikið fyrir svoleiðis, og ég finn það líka núna að ég hef ekki eins mikið þol og ég hafði, hefði aldrei átt að hætta í ræktinni hehe...En við ætlum að reyna að vera dugleg saman og rífa hvort annað upp á rassgatinu og fara út í fótbolta eða hlaupa eða e-h sniðugt;) Svo er nú líka hægt að gera aðrar hreyfingar, þannig að við erum nú ekkert hreyfingarlaus hehe!!
Um helgina ætlum við að skella okkur í réttir, alltaf gaman að skella sér í réttir, endum svo laugardaginn á því að fara í staffapartý með vinnunni hans Steina, og fyrir þá sem ekki vita þá er hann byrjaður í BT :)
En nóg af þessu rugli hjá mér, veit ekkert hvað ég á að segja ykkur meirJ ætla ekki að hafa þetta lengra í þetta sinn..reyni svo að fara vera duglegri að blogga, en þið verðið þá líka að lofa mér smá kvitteríi;)
....Valgeršur Kristjana Žorsteinsdóttir
Kannski kominn tími á eitt blogg hjá mér :)
Það er bara allt ljómandi að frétta af mér og mínum.
Skelltum okkur út til dk og það var bara mjög gaman, alveg hrikalega heitt og maður brann nú alveg smá hehe og ekki í fyrsta skipti og líklegast ekki í seinasta;) Þetta var bara mjög fín ferð, Sunna systir Steina kom með okkur út og það var bara mjög gaman að hafa hana með, stelpurnar létu nú Sunnu finna meira fyrir því heldur en okkur t.d að fara úta trampolin, fara í stoppdans og fleira, en hún stóð sig alveg frábærlega vel hehe;)
Við gerðum nú kannski ekkert svo mikið þarna úti, en við skelltum okkur nú samt í búðir og náðum að versla þónokkuð á okkur, ég var reyndar ekki alveg að standa mig eins vel og Steini og Sunna, þau náðu nú að kaupa sér þarna fyrsta daginn en ég veit ekki alveg hvað var að mér hehe, yfirleitt er mjög létt fyrir mig að kaupa á mig föt svona þegar ég get það;)
Ákváðum að skella okkur í Legoland, mjög fínn dagur og mikið að skoða. Forum þarna 11 leytið og vorum til ca 8, það var meira en nóg bara hehe, náðum að fara í flest tækin og náðum líka að skoða allt saman. Steini ætlaði sér nú að vera til 10 en við vorum fljótar að breyta tímanum og ákvaðum bara að fara um 8 heim til horsens aftur;)
Didda og co komu svo sama dag heim, þá vorum við búin að vera ein heima hjá þeim í ca 2-3 daga man ekki alveg, en þau voru í Hollandi. Mjög gaman að sjá þau öll, stelpurnar alltaf jafn yndislegar:*
Svo var það nátturulega hápunktur ferðarinnar á sunnudeginum, því þá voru Iron Maiden tónleikarnir :) haha aldrei datt mér í hug að ég færi á svona tónleika, en ég skemmti mér alveg vel þarna, allt annað að hlusta á þá svona live heldur en bara heima í tölvunni. Horfði reyndar örugglega meira á fólkið í kringum mig heldur en þá þarna á sviðinu hehe:P
Svo ákvaðum við að skreppa til Vejle í eitthvað moll þarna, það var nú alveg þónokkuð stærra heldur en það sem er í horsens. Man nú ekki alveg hvað ég náði að versla mér þar en ég náði allavega að kaupa mér eitthvað í New Yorker. Fórum svo út og í göngugötuna, ákvaðum að fá okkur að borða þarna, hefðum kannski betur átt að sleppa því,. Þar sem að steini fékk matinn sinn löngu eftir að við fengum okkar, einhver miskilningur og við alveg að verða búnar með matinn þegar hann fékk loksins sinn, en þetta var reyndar alveg góður matur þarna . En svo þegar það kom að því að borga þá töluðum við þarna við yfirþjóninn eða e-h og hann tók það ekki til mál að gefa okkur smá afslátt hehe, en við ákvaðum þó allavega að prófa :)
En annars var bara slappað af og étið salgæti hihi, slepptum okkur aðeins í nammiátinu! En annars var þetta bara mjög skemmtileg ferð, og þakka ég bara kærlega fyrir okkur Didda og co, er nú farin að sakna þeirra strax:*
Jáá, var að koma heim úr vinnunni, frekar lítið að gera. Það er nátturulega allir á fiskideginum eða þá á króksmóti eða pæjumótinu. Langar að skella mér í kvöld til dallas en ég veit ekki alveg hvað ég á að gera, er að reyna að fá Steina með mér en hann er ekki alveg á því að nenna hehe J En ætli ég hafi þetta bara ekki nóg í bili, ætla að fara reyna að ákveða mig hvort ég eigi að fara eða ekki..
En jæja Síssa mín núna er ég búin að blogga hehe, veriði nú dogleg að kvitta, og bara allir sem að lesa alltaf gaman að sjá hverjir eru að skoða;)
....Valgeršur Kristjana Žorsteinsdóttir
Ég sem að ætlaði mér að vera svaka dugleg að blogga, en blogg fáiði þó;)
Það er mjög fátt sem að ég get bloggað um, lítið sem ekkert búið að ske hjá mér og mínum seinustu daga ;)
Helgin var fín, mamma og strákarnir komu til okkar á föstudaginn og gistu, vegna þess að Kristinn var að keppa hérna á N1 mótinu, ég horfði á nokkra leiki hjá þeim og þeir stóðu sig bara mjög vel. Eitt reyndar sem að ég hef úta þetta að setja, er sambandi við þessi stóru lið t.d frá suðurlandinu, það má varla anda á þessa stráka þá láta þeir sig detta haha, ég veit vel að leiftur og þessi smábæjarlið láta nú líka svona, en það hlítur bara e-h að vera sammála mér. Allavega þarna í 2 leikjum sem að ég horfði á, þá mátti varla ýta við þeim eins og er alltaf gert bara til þess að ná boltanum og svona en þá létu þeir sig detta og dómarinn fell fyrir því, aðalega einn dómarinn og ég nefni ekkert nafn! En annars var þetta bara mjög gaman, er mjög ánægð með árangurinn hjá þeim þeir enduðu nú í 7 sæti af 36, það er nú bara mjög gott;)
En á Laugardaginn þá átti hún móðir mín afmæli, þessi elska varð 39 ára:* Dagurinn var mjög fínn, horfðum á leikina hjá Kristni og co, ákvaðum að skella okkur svo í ZikZak nýju búðina sem var að opna hérna á ak og ég keypti afmælisgjöfina handa mömmu þar, leyfði henni bara að velja sér föt, og hún kom sko ekki tómhent út, enda sá ég sko alveg um það að fara með fleira inní klefann til hennar hihi:* Fórum síðan í heimsókn til Helgu frænku og ákvaðum svo að skella okkur í keilu og það var bara magnað, strákarnir fengu að vera með og byrjuðu á því að hafa “grindurnar” uppi, Kristinn ákvað að gera það líka, vegna þess að hann sveiflaði kúlunni svo þannig að hún fór alltaf strax útaf brautinni :P En í endann ákvaðum ég, Steini og mamma að hafa þær bara líka ég nennti ekki að vera alltaf að láta grindurnar upp og niður hehe, en þrátt fyrir það var þetta mjög gaman. Eftir keiluna forum við útað borða á greifanum, fengum þarna dýrindis mat og svo lá leiðin bara heim og kúra;) En þessi dagur var æðislegur, og takk æðislega fyrir daginn mamma og co og mamma efað þú lest þetta þá elska ég þig mest í heimi, þú ert langtum best:*
Jáá, ég er sko ekki búin að telja þessa afmælisdaga upp þar sem að hún amma Dísa á afmæli í dag og er hún orðin 76 ára:* Til lukku með daginn elsku amma mín:*
Já svo á hún amma Gerða afmæli 10 júlí, og svo Björgvin bróðir 11 júlí, Hanna Karin 13 júlí, Maggi 15 júlí og Kamilla 23;) Jáhh það er sko nóg afmælum í júlí hérna í familíunni hehe!
En nóg af þessu afmælistali, það er nú full langt þangað til að ég á afmæli pff;) En ég veit reyndar ekkert hvað ég á að blogga um meira, held að ég sé búin að koma öllu frá mér! Held að ég fari bara að skella mér í rúmmið og bíða eftir að þátturinn á skjá einum sé búinn svo að Steini komi og kúri hjá mér smávegis áður en við förum að sofa:* Ætli ég hafi þetta bara ekki gott í bili, Hafið það gott elskurnar og veriði svo dogleg að kvitta ;)
Blogg segiši!Valgeršur Kristjana Žorsteinsdóttir
Jæja, fyrst þið viljið fá blogg þá fáiði stutt blogg;)
Ég veit að ég er búin að vera mjög löt við það að blogga, en það er kannski bara vegna þess að þið eruð heldur ekkert nógu dugleg við það að kvitta, heil 5 í seinasta bloggi..koooma svoo:)
En af mér er allt gott að frétta! Það er nú ekkert mikið búið að gerast hjá mér undanfarna daga. Jú ég get sagt ykkur frá einu, en ég byrjaði í einkaþjálfun, þetta gengur svona lala bara, er ekkert nógu ánægð með þetta sem komið er, en það fer vonandi eitthvað að fara, er nú reyndar búin að missa eitthvað, var allavega ánægð þegar hún vigtaði mig seinast, talan lækkar allavega;) En þetta er nú ekki búið, er samt mjög ánægð með þjálfarann en þetta er nú aðalega ég sem er ekkert svaka dugleg, mataræðin hjá mér undafarið er kannski ekkert það besta..en þetta kemur ;)
Ákváðum að skreppa á Blönduós á föstudaginn, Diddan ákvað að fara og horfa á strákana keppa. Þetta var mjög fín helgi, fórum með tjaldið Steina, það er nú reyndar frekar stórt fyrir 2 manneskjur, en ég meina það kemur að því að við verðum fleiri hehe! Fyrsta nóttin var frekar köld, ég var að drepast úr kulda alla nóttina, en seinasta nóttin var aðeins skárri. Maggi ákvað að fara með gashitarann og ath hvort að það myndi ekki aðeins hitna þarna inni hjá okkur, og jú það virkaði, gat allavega sofnað í hitanum og vaknaði í þessum SVAKALEGA hita! En strákarnir stóðu sig bara mjög vel, og alltaf jafn gaman að horfa á þessi litlu kríli hlaupa á eftir boltanum og efað einn hleipur í eina átt þá fara allir á eftir snilld:P
En ég veit ekki alveg hvað ég á að segja ykkur meir, er að spá íþví að fara og horfa á leikinn. Veriði svo dugleg að kvitta efað þið viljið fá blogg eftir stuttan tíma;)
stóšu sig eins og hetjur:)Valgeršur Kristjana Žorsteinsdóttir
Ætli það sé ekki bara kominn tími á að blogga:) Sit hérna heima hjá mömmu í Vesturgötunni og bíð eftir því að Marta nái í mig!Á fimtudaginn skellti ég mér í klippingu, jii það er eins og að ég sé gráhærð:/ er samt alveg farin að sætta mig við þetta, fannst þetta frekar skrítið bara fyrst en þetta lagast;) Er samt mjög sátt með klippinguna..
Um helgina ákvað ég að skella mér til ólafsfjarðar, mjög fínt að koma svona einstöku sinnum til ólf:) Didda kom á föstudaginn með Hildi og Evu algjört æði að sjá þær loksins og Hildur Heba kom alveg óvænt:) Enda eru þær alveg búnar að þurfa að finna fyrir mér alla helgina hihi...
í gær vaknaði ég um 10 skellti í mig morgunmat og fór síðan stuttu seinna heim til ömmu Gerðu og afa Himma til að hitta gellurnar 3, skrapp með þeim uppí Hornbrekku á e-h handavinnusýningu ótrulegt hvað "gamla" fólkið er flínkt við að sauma og hekla og svona, aldrei að vita nema að maður verði svona sjálf;) Fórum eftir þetta heim til ömmu og afa og vorum e-h að brasa bara, um 6 leytið lét svo Steini sjá sig, borðaði þarna með okkur grill mat og horfði með okkur á Eurovision, ég var bara mjög ánægð með þetta og Friðrik Ómar og Regína geta verið sátt með flutningin sinn, þetta var bara geðveikt hjá þeim og ekki má gleyma laginu Qele Qele frá Armeníiu jiii, enda er Steini kominn með ógeð af því, er alltaf að hlusta á það heima :P Eftir helgina fórum við heim og vorum e-h að spjalla við mömmu, fórum síðan stuttu seinna bara að sofa, síðan fór Steini aftur í morgun og fór í sauðburðinn!:)
í dag er ég nú bara e-h búin að vera letipúkast, vaknaði um 10 skellti mér í sturtu og skrapp svo til Kamillu, hún plokkaði mig og litaði og ég er bara mjög sátt, reyndar frekar mjóar en það er all í key;) fór síðan með mömmu í búðina og svo í heimsóknir, byrjaði á því að fara til diddu og co og lá þar bakvið hús í sólbaði, shii hvað það var hrikalega heitt :) Fór síðan í mat til ömmu Dísu og afa Gauja og fékk þetta dýrindis lamb umm hvað þetta var gott!
Og núna sit ég hérna heima bara og bíð eftir Mörtu:) Ætli ég hafi þetta bara ekki gott í bili, ætla að fara klára að gera mig til! Hafið það gott elskurnar.. og þið megið alveg endilega vera duglegri við að kvitta..heil 4 kvitt í síðasta bloggi!:)
....Valgeršur Kristjana Žorsteinsdóttir
Kannski kominn tími á eitt stykki blogg!
Ég hef hreinlega ekki nennt því að blogga, samt alveg eitthvað búið að ske síðan í seinasta bloggi;) Annars er bara allt gott að frétta af mér og mínum..
Bandymótið var í byrjun maí, ég ákvað að vera með og var með Hafblik, vinnunni sem að mamma var að vinna hjáJ þetta var bara helvíti magnað, var dregin í happdrætti og fékk þetta fína gjafabréf í listfléttunni, hef reyndar ekki hugmynd hvar hún er, en ég finn það á endanum;)
Styttist óðum í Diddu og Evu sætu, ekki nema 9 dagar í þærJ Er orðin alveg hrikalega spennt enda hef ég ekki séð þær síðan í Okt, sem er ekki alveg að gera sig, spurning um að maður fari bara ekki að flytja til þeirra, eða nálægt þeim allavega!
Ég skellti mér í sauðburð á Sunnudeginum með Steina, fór reyndar með Önnu Birnu úteftir um half 9, mjög fínt að kíkja stundum með honum í sauðburðinn, ég get líka sagt ykkur eitt að ég hélt á Lambi í fyrsta skipti hahah, og ég er að verða 19 pæliði í því;) Steini verður allan maí í sauðburðinum og kemur svo vonandi til ak eftir maí og leitar sér að vinnu hérna á ak, orðið þreytandi að keyra svona á milli held ég;) ég kannast nú allavega e-h við það… Enda veit ég ekkert hvað ég á að hafa í matinn, hann borðar nú yfirleitt í Laufási þannig að það er fínt, en ég veit ekkert hvað ég á að borða svona ein, lifi á skyri bara það sem eftir er af mánuðinum hehe;)
Ræktarmálin eru nú ekkert mjög góð, hef ekkert verið dugleg:D en ég fer að drullast til að hreyfa mig, tók mig reyndar til og labbaði heim úr vinnunni, tók mig alveg 20 mín sem er reyndar bara fínt mál, hef gott af þessari hreyfingu:)
En jæja, ætli ég hafi þetta bara ekki nóg í bili, ætla að fara laga smá til og bíða eftir Steina svo að við getum nú farið út smávegis, svo gott veður:)
Hafið það gott elskurnar, og þið megið endilega kvitta fyrir innlitið;)
....Valgeršur Kristjana Žorsteinsdóttir
Blogg segiði?Ég hef hreinlega bara ekki nennt því að blogga:/, hef reyndar alveg eitthvað að segja ykkur:) Ligg hérna heima í sófanum að láta mér leyðast, nenni ekki að horfa á þetta sjónvarp, aldrei neitt skemmtilegt í sjónvarpinu á Mánudögum eftir One tree hill:)
En af mér er bara allt gott að frétta:) Um daginn fór ég með vinnunni í keilu, það var bara geggjað:P ákvað svo að skella mér í keilu með Steina, Rakel og Eyberg. Þetta var magnað kvöld, Steina langaði ekkert með mér í keilu með vinnunni en núna er hann farinn að fíla þetta í tætlur:p, skelltum okkur í gær með Maríu, buðum henni í mat og ákvaðum svo að fara í keilu, segjum bara að við 3 höfum verið misgóð:) En ég held að Steini sé endalaust til í keilu núna, enda er hann alveg farinn að geta þetta drengurinn, tekur mig allavega alltaf í keilu (ekki miskilja) ;)
Á laugardaginn skelltum við okkur á Kaldbak með mömmu, Kristni og Guðjóni. Þetta var snilldar dagur, tókum alveg nokkrar myndir, en flestar eru nú ekkert mjög skýrar þar sem að það var svo mikil sól að það sást ekkert fyrir henni á myndunum
Veit nú reyndar ekkert hvað ég á að blogga meir, er að spá í því að fara og gera mig til fyrir ræktina á morgun og fara síðan bara í bólið:)
Enda þetta á einni mynd af okkur Steina á Kaldbak.

...Valgeršur Kristjana Žorsteinsdóttir
Ég veit að ég er búin að vera löt við það að blogga, ég er bara ekki búin að hafa eins mikinn tíma og ég ætlaði mér
Á mánudaginn í vinnunni þá tókum við Rakel þá ákvörðun að vera svaka duglegar í ræktinni núna í einhvern tíma, og vonandi sem lengstJ Við fórum í ræktina eftir vinnu á mánudaginn og töluðum við einhvern einkaþjálfara þarna, báðum hana að mæla og vigta okkur, ég var svona nokkurnvegin sátt með útkomuna, fékk allavega að vita það að ég mætti alls ekki missa neitt af lærunum og aðalega bara að styrkja allan líkamann, ég var frekar hissa vegna þess að mér hefur alltaf fundist ég vera með smá stór læri eða innanlærin láta nú alveg sjá sig sko og er nú alveg með einhverja bumbu:P Vikan er nú samt búin að ganga þónokkuð vel, fórum aftur á þriðjudaginn og svo tókum við miðvikudaginn með stæl, ákvaðum að fara í sund um morgunin og við syntum þarna nokkuð margar ferðir og svo ákvaðum við að fara í ræktina um kvöldið! Finnst við allavega ágætlega duglegar, og erum nú alveg að standa okkur með matardagbækurnar, held að við séum alveg að borða mjög hollan mat, byrjaði að taka einhverja sportþrennu skil samt ekki alveg afhverju þetta heitir sportþrenna þar sem að þetta eru nú 4 töflur á morgnana, kannski heitir þetta bara sportþrenna þar sem að þetta eru 3 mismunandi gerðir:) Eeen ég lét það nú eftir mér í dag að fá mér snúð í kaffinu:/
En nóg af þessu ræktartali... Af okkur er allt fínt að frétta, ég tók það nú að mér að ná mér í þessa blessuðu pesti sem var/er að ganga, Steini byrjaði nú reyndar á því að fá þessa flensu á mánudaginn og ákvað svo að skella sér í vinnuna í gær, en hann tók þetta með trompi og er kominn með ælupesti núna, er nú reyndar að skána greyjið:*
Annars gengur bara allt vel hjá okkur, og erum alveg himinlifandi bæði tvö hehe
Veit nú ekki hvað ég á að blogga meir, held að þetta sé bara nóg fyrir ykkur í bili, ætla að fara gera mig ready fyrir sjónvarpskvöld, þar sem að það eru nú nokkrir góðir þættir í kvöld, ætla að dobbla kallinn í smá kúr.. Verið svo dugleg að kvitta elskurnar, alltaf gaman að sjá hverjir eru að kíkja hingað inn!
Gerða bumbulína :)


